Lækningamáttur Aloe Vera Verkanir og vitnisburðir Eftir Dr Peter Atherton Þessi bók er komin út á íslensku, í þýðingu Agnars Steinarssonar, líffræðings, og inniheldur gagnlegar upplýsingar um verkanir Aloe Vera. Í bók sinni rekur Dr Peter Atherton sögu Aloe Vera plöntunnar, hvernig innviðir hennar eru og hvaða efni hún inniheldur. Dr Peter fer vel í lækningarmátt Aloe Vera og á hvað hún verkar bæði útvortis sem og innvortis. Þá er í bókinni gerð góð skil á þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið á plöntunni í gegn um tíðina. Dr Atherton skrifar m.a. í bók sinni: Aloe Vera verkar aðallega á þekjufrumur. Húðin er stærsta þekjulagið og í raun stærsta líffæri líkamanns. Innan í munninum breytist þekjan og verður að slímhimnu, þekjan heldur áfram að breytast þegar að leið liggur í gegn um vélinda, magann, smáþarmanaog stórþarmana en breytist aftur í húð við endaþarmsopið. Þekjulagið þekur innra borð nefhols, ennishola, barka, lungnaberkna og kynfæra. Það er því engin furða að fólk með húðvandamál, ristilvandamál, asma og kynsjúkdóma, lýsi jákvæðum áhrifum eftir notkun á Aloe Vera. Fólk sem drekkur Aloe Vera gel reglulega, þar með talinn ég sjálfur, talar almennt um meiri vellíðan þeim hreinlega líði betur og séu í meira jafnvægi. Ég tel að ástæðan sé sú að Aloe Vera hafi jákvæð stillandi áhrif á ónæmiskerfið.
|